Áááá. Nei nú er nóg
Þetta er alls engin ást
Gefstu upp, þetta er gott
Sko þytt glott, þetta er ást
Nei vonlaust show þetta er alls engin ást
Af vörum lest að það sést
Þið eruð brjál ég játa ekkert
(já það erum við já
Nei útrætt mál ég játa ekkert
Vertu ekki treg, þetta er gott, þetta er ást
Áááááást.
Svona upphátt ég ekki játa mína
Ást.
Hér er svo lagið "Upp á æru og trú", eða That's the Gospel truth. Og guð minn GÓÐUR hvað raddir stelpnanna hljóma óraunhæflega sterklega og fallega!!!! Nefni ég þær Rut Reginalds, Berglindi Björku og Siggu Benteins sem ljá músunum sínar unaðslegu söngraddir! Ekki veit ég þó um allar. En fyrir utan að lagið búi yfir fáránlega skemmtilegri laglínu segir það líka frá einum fyrstu sagnanna úr Grískri goðafræði, sem er ofursvalt að sjálfsögðu ^^
http://www.youtube.com/watch?v=hQ0whCviKXs&feature=PlayList&p=ED41B2FF737DACB3&index=3

Upp á æru og trú (I)
"Við erum Músurnar, listagyðjurnar og matsnefnd á hetjur."
"Hetjur eins og Herkúles."
"Elskan, þú meinar Sexíkles.
Ég væri til í að taka taktinn með honum ..."
"Saga okkar hefst eiginlega löngu fyrir daga Herkúlesar.
Fyrir örófi alda..."
Við upphaf alheimsins,
Þá okkar jörð ekki álitleg var.
Og óðir þursar æddu um allt með látum alveg snar.
Já, algjört eymdarpláss.
Og ojbjakk hvar sem tylltirðu tá.
Því Kaos réð og stanslaust gekk
Með gosi og skjálftum á.
Já, lát heyra!
Og svo kom Seifur að,
Sendi á þá leiftrið sitt.
Ó stuð!
Þeim fleygði í fúlan pytt!
Sá guð.
Og Kaosi hann nær og niður snýr.
Já, upp á æru og trú.
Nei náunginn var ekkert möppudýr.
Það var á vasa skráð
-já, elskan-
Að veröld öll varð náðugri nú.
Þetta er allt alveg satt mín kæru
Upp á æru og trú.
Í guðaheimum guðaveigar
Gerðu menn edrú.
Þetta er allt alveg satt mín kæru
Upp á æru og trú.
Þá er það lagið "Upp á æru og trú", partur 2, eða That's the Gospel Truth II. Þetta er annar af þremur pörtum sem kynna myndina, sem sagt segja allt sem gerðist áður en Herkúles kom til sögunnar. Þessa partur gegnir því mergjaða hlutverki að vera kynning fyrir þorpara myndarinnar, sjálfann Hades! Þetta er flott lag, mjög stutt þó, en flott. Samt örlítið sorglegt að hugsa til þess að Hades fékk ekkert lag. Engin sönn söngleikja-Disney mynd ef vantar skúrkalagið, ekki satt? Myndin kom samt nú yndislega út, og verður að viðurkennast að Hades er einn af uppáhalds skúrkunum mínum ^^
http://www.youtube.com/watch?v=hQ0whCviKXs&feature=PlayList&p=ED41B2FF737DACB3&index=3

Upp á æru og trú II
"Af öllum guðum var Hades sá sem síst átti að ergja."
"Því hann hafði illt í huga..."
En drottni dauðraheims
Fannst hinir dauðu dapurleg hjú.
Og hann var ekkert nema illskan
Já upp á æru og trú.
Hann var að plana að hleypa öllu upp.
Já upp á æru og trú!
Hér er þá síðasti parturinn, Upp á æru og trú, partur 3. Sorglegur og snertandi partur. Eftir að Herka var rænt af Píni og Pata (snilldarkarakterar) og gerður "dauðlegur" kemst bara allt í voða og eru að sjálfsögðu allir fremur sorgmæddir heimafyrir! Enn og aftur verð ég að nefna þessar mjög svo hæfileikaríku söngkonur sem ljá músunum raddir sínar! Þetta lag gefur mér enn gæsahúð, vegna kröftugleika þess og syrgðina sem sleppur sér í gegnum sönginn!
http://www.youtube.com/watch?v=hQ0whCviKXs&feature=PlayList&p=ED41B2FF737DACB3&index=3

Upp á æru og trú III
Nú dauðlega vera hann var.
Þó kom sér vel hann drakk ekki allt
Því nú hann hélt þeim heljarstyrk
Sem hann í vöggu hlaut.
Láttu það koma.
Að Seifi setti grát.
Af því hans sonur útlægur var.
Og hann og konu hans
Kvaldi það að sjá hann hverfa á braut.
Í helju Hades sat,
Er grétu heima Seifur og frú
En hetjan aflið alltaf óx
Já upp á æru og trú
Æru og trú
"Svo þú vilt verða hetja", eða One last hope heitir svo þetta lag. Lag sem sýnir nokkur ár í lífi Herkúlesar, eða þann tíma sem Fílótetes tók í að þjálfa hann. Hið fínasta lag, gamansamt og litríkt og getiði hver syngur? HANN GUÐMUNDUR ÓLAFSSON! Jebb, krúttlegi, litli horaði og sexí sígauninn hann Klópinn er nú dvergvaxinn feit geit sem skortir félagslyndi ^^ Bara sætt, en það er að sjálfsögðu nóg til að elska lagið!

Svo þú vilt verða hetja
Svo þig langar til að verða hetja? Vúppí dú.
Mig búnir eru að brenna á slíku bjálfar eins og þú.
Mér þeir reyndust eins og krampi í ristli
Raun - sem græða engin smyrsli.
Þú segist undan Seifi samt ég bessaleyfi
Tek mér suði þínu að sinna ei.
Svo svar mitt er tvö orð ... Ókei!
Þú vannst! Ó guð! Ó vei!
Þá fornu ég fagran draum frá mér lét
Að þjálfa einhvern sterkan strák sem að slægi öll met.
Sem skaffaði verðlaun og skammtaði sér laun
Næg skyldi það mér laun en nei – ég fæ græningja.
Svo striki yfir allt ég sló faldi slóðina.
Léta lynda í leti að bíta upp lóðina.
En þig vantar þjálfa. Og það engan bjálfa.
Hálf – mann og geit hálfa og – brjóstsviðinn aftur!
Nú ný mér veitist von og sú von ert þú.
En gagns og glórulaus sýnist glætan sú.
Í þér hefur ekki mín þrá svo sem ræst
Þó skal hafa það sem er hendi næst.
Þó hendur leggdi hetja á fól því hætti til að slasa 'ana.
Tæpt er því að trúa því sem teiknað er á vasana.
Að vera sönn hetja er vandi og vinna merk.
En er eins og önnur kúnst list og hjartaverk.
En vinnan og stritið, ef vel er á litið,
Er vonlaust ef vitið ei vex. Nú líst mér á þig!
Nú fæ ég lokafæri og nýtt fyrirheit.
En gröfin gleypir brátt þessa gömlu geit.
Ég stóla á þig strákur já stattu þig nú.
Æfðu lon og don því Herkúles Heruson
Mín hinsta og eina von er nefnilega þú.
Þá er það lagið "Ég finn minn samastað", Go The Distanse heitir það á ensku. Fallegt lag, örlítið emo en það er aldrei bannað ^^ Verð ég einnig að nefna þau fallegu landslög, s.s. bakgrunnsteikningar sem koma fyrir í þessu litla atriði! Varla hægt að missa af þeim, en greinilegt er að mikil tilfinning var látin í þetta lag
Og þegar það endar má sjá sjálfa Seifsstyttuna!

Ég finn minn samastað
Oft mig dreymir um
Einhvern undrastað
Og með heitum hjörtum
Þar menn taka allir mér.
Og þar hátíð er
Þegar ber mig að
Og ég sé svo vel að
Hér minn samastaður er.
Er ég stefni af stað
Standast mun ég prófið
Því ég eignast vil
Öruggt vígi og borg.
Ekki mun því áð
Uns því marki er náð.
Er ég sé minn samastað
Þá sefast fær mín sorg.
Nú ég stefni af stað.
Standast mun ég prófið.
Og í langa ferð
Legg ég óhikað.
Aldrei skal svo áð
Uns því marki er náð.
Ég mun fara um fjarlæg lönd
Og finn minn samastað.
Hér er svo reprisið fyrir lagið að ofan, þegar Herkúles er búinn að mæta pabba sínum í fyrsta skiptið. Er hann nú fullur vonar og ætlar að sjálfsögðu að reyna sitt besta við að verða sönn hetja og geta gengið í guðatölu! Þetta lag er stutt en áhrifamikið, og verð ég að hrósa íslenska söngvaranum sem syngur þessi lög, þó ég viti ekki nafn hans sem stendur ^^

Ég finn minn samastað (reprise)