Litla Hafmeyjan II: Til hafs á ný er eitt af yndislegustu framhöldum sem Disney hefur gert!! Að sjálfsögðu þá hafði þetta framhald á yndislega góðri mynd að byggja! En samt ég bæði hata og elska þessa mynd í senn. Hún pirrar mig en samt ekki. Lögin eru eitthvað svo frábærlega skemmtileg og aðalpersónan María dóttir Aríelar er á mörkunum að vera svona persóna sem fer í taugarnar á mér og ég er viss um að hún fer í taugarnar á mörgum. En ef þið eruð á móti Disney framhöldum þá skuluð þið leggja það til hliðar í þessu tilfelliog horfa á þetta framhald
Myndin var tilnefnd til 4 verðlauna en vann engin. Enda gera framhöld sjaldnast það. Lögin er svoooo skemmtileg í þessari mynd svo horfið allavega á hana til að sjá/hlusta á þau. JÁ Á ÍSLENSKU!!!
For a Moment eða á íslensku Eina Smástund ^^ Djöful er það sætt lag!! Elska það! Eins og öll lögin úr þessari mynd. Og djöful er ísl. röddin fyrir Maríu flott!! Hún er með svo mikinn karakter! Og ekki verra að nú sé Valgerður Guðnadóttir komin aftur á kreik með sína guðdómlegu rödd sem Aríel! En hérna í laginu kemur orðið "klafi" og ykkur til huggunar skal ég útskýra fyrir ykkur hvað það getur þýtt svo þið verðið ekki áttavilt. En það getur þýtt svona tréhringur sem er látin um háls á nautgripum eða hlekkur. Og ég tel líklegara að hér sé viðátt hlekk
En að sjálfsögðu hef ég klippuna tilbúna fyrir ykkur [http://www.youtube.com/watch?v=woQGR9CA_aI]

Eina Smástund
(María) Þá það, ekkert fát
Engin hætta, ekki nokkur Bara hugsa mér að þeta sé einn stór sokkur
Vinstri er hér, en hægri er hvar? Ég hringsóla bara og verð alveg snar
Svo þetta er áfram, ekkert málÉg trúi því varla að sé þetta satt
Ég syndi jafnvel og ég áður gekk hrattSkriðin úr skelinni loksins ég er
Sko mig haf, þetta er ég Ég er hér!
Eina smástund allt er breyttEins og hafið og ég séum eitt
Ég skýst og ég snýstSvona þokkafull öll
En skökti ekki og hökti Eins og heima í höll
Eina smástund er ég frjálsEnginn klafi mér hengdur um háls
Ég er laus undan kröfum Og hirðsiðakvöð
Eina smástund, aðeins smástund
Er ég glöð!!!
(Aríel)
Hefði ég bara svarað
Því öllu er um var spurt
Væri ekki hafið hættuslóð
Og því varstu að fara burt?
(María)Allt er blárra og tærra og hærra
Og stærra en var áður mitt líf Og ég svíf
Eina smástund ljóma ég
Ég hef sporð og ég syndi minn vegÉg kæri mig kollótta hvernig allt fer
Þó krullurnar renni úr hárinu á mér!
Eina smástund sé ég að
Allt er dreymdi mig gat átt sér stað
Og ég finn nú að hafið er lag mitt og ljóð
Eina smástund hef ég fundið heimaslóð
(Aríel)Ég leita að þér til þrautar
Því þú ert mitt hold og blóðSvo held ég þér faðmi mínum í
Og syng sjávarins lag og ljóð
Og syng sjávarins lag og ljóð
(María)
Eina smástund hef ég fundið heimaslóð
Hips og Haps heitir mörgæsin og rostungurinn í þessari mynd
Og eiga þeir sér eitt sætt lag þar sem verið er að syngja um hvað þeir eru æðsilegir. María slæst einstöku sinnum með í laginu og er þetta alveg að mínu mati bara helvíti gott
Og fáránlega auðvelt að fá það á heilann O_O Orð sem við lærum í þessum texta eru tvö!!
Fort = strax, fljótt
Sutt = úr suttungur, sem er jötunn sem gætir skáldskaparmjaðarins
Hips & Haps
[Hips]
Heimshöfum sjö, tökum nú tak
Tannhvassar sjókindur brjótum á bak
Vernda ég skal nú mitt vinaval
Þó minni hann á hval
[Haps]
Hey!
[María]
Með mun minni við sporð
[Hips]
Fantana fælum með frækni frá
Þrjótarnir þola ekki þjáningu þá
Fort bræðraband
Svo brýst á land
Og böðlast í þeim
[Haps]
Má svo fara heim?
[Hips&Haps]
Hugaði Hips og hetjan Haps
Könnuðir skástrik kappar
Hugaði Hips og hetjan Haps
Könnuðir skástrik kappar
Já köllun vor
Er þrek og þor
Og aðdáendur klappa
Og okkar hjálp
Er ætíð Haps
Hugaði Hips og hetjan Haps
Við kýlum krabba með kaldar klær
Og ókindur allar við sigrum þær
Stríðin með sutt og tekur fljótt af
Og þið munuð halda aftur heim sem hetjur um haf!
Við oft munum sjást í hver eða hvar
Klífum hvert fjall af því það er þar
Nú eltið þið mig
Nú skal drífa sig
Í forkinn þú nærð
Já, forkinn!
Þú færð!
Hugaði Hips og hetjan Haps
Könnuðir skástrik kappar
Hugaði Hips og hetjan Haps
Könnuðir skástrik kappar
Já okkar hjálp
Er ætíð Haps
María!
Hips og hetjan Haps
Eitt er mark hjá öllum þrem
Antlantíka hér ég kem!