Halló!
Vitiði að í mörgum löndum eru Disney myndir svona
endur-talsettar? S.s. þær voru talsettar þegar þær fyrst komu
út, og svo í endurútgáfum á t.d. DVD eru þær talsettar upp á
nýtt, þannig að á endanum eru oft til þrjár talsetningar á
sömu myndinni. Og upprunalegu talsetningarnar eru ekki einu
sinni gefnar út með, verða s.s. ófáanlegar fyrir utan á 100
ára gömlum spólum.
Einhver
austurrískur Disney aðdáandi var að segja mér frá þessu, og þó
þetta gerist ekki hér má alveg styðja Þýskaland, Austurríki,
Frakkland og þau mörg önnur lönd sem að lenda í þessu! Ég meina,
hugsiði ef þetta væri gert hjá okkur! Frekar pirrandi, og
tilgangslaust.
Svo já, hér er
svona síða sem er að safna undirskriftum um að gefa út gömlu
talsetningarnar 
http://www.gopetition.com/online/11662.html
Svo endilega
sýna stuðning til Disney aðdáenda um allan heim og skrifa undir!
